top of page
Search

Réttindi farþega PLAY eftir gjaldþrot

  • Flughjálp
  • Sep 29, 2025
  • 2 min read

Flyplay jet

Hvað þýðir gjaldþrot PLAY fyrir farþega?

Flugfélagið PLAY hefur tilkynnt að það hætti starfsemi og allar ferðir félagsins eru felldar niður. Þetta skilur eftir fjölda farþega sem sitja uppi með ónýtta flugmiða og spyrja sig: „Hvernig kemst ég á áfangastað og hver eru réttindi mín?“


Réttindi farþega PLAY eftir gjaldþrot

Það er eðlilegt að farþegar spyrji sig hvaða möguleika þeir hafa þegar flugfélag fer á hausinn. Réttindi farþega PLAY eftir gjaldþrot ráðast fyrst og fremst af því hvernig flugið var greitt og hvort það var hluti af pakkaferð eða ekki.


Hvernig kemst ég á áfangastað?

Farþegum PLAY er bent á að leita beint til annarra flugfélaga og kanna möguleika á nýju flugi. Það er því miður ekki þannig að önnur félög beri skyldu til að flytja þig áfram í staðinn fyrir PLAY.


Hver eru réttindi mín?

Ef þú greiddir með kreditkorti

Farþegar sem keyptu miða með kreditkorti ættu að hafa samband við kortafyrirtækið sitt og óska eftir endurgreiðslu. Þetta er yfirleitt fljótlegasta og öruggasta leiðin til að fá peninginn sinn til baka.


Ef ferðin var keypt í pakkaferð

Ef flugið var hluti af pakkaferð (t.d. miði + gisting keypt saman hjá evrópskum ferðaskipuleggjanda), þá eiga farþegar rétt á heimflutningi samkvæmt samevrópskum reglum um pakkaferðir. Í því tilfelli þarf að hafa samband við þann ferðaskipuleggjanda sem seldi ferðina.

Ef þú átt kröfu á hendur PLAY

Farþegar kunna að eiga kröfu á hendur PLAY, m.a. á grundvelli reglugerðar um réttindi flugfarþega (EC261/2004). Þá er hægt að senda kvörtun til Samgöngustofu vegna kostnaðar sem fellur til við nýja bókun. Slíkar kröfur þarf hins vegar að lýsa í þrotabú PLAY þar sem félagið hefur hætt starfsemi.


Hvað á ég að gera næst?

  • Hafðu tafarlaust samband við kortafyrirtækið þitt ef þú greiddir með kreditkorti.

  • Ef ferðin var pakkaferð → hafðu samband við ferðaskipuleggjandann.

  • Ef þú ert í vafa eða átt aðra kröfu → haltu öllum kvittunum og sendu kvörtun til Samgöngustofu, auk þess að fylgjast með skráningu krafna í þrotabúið.

👉 Við hjá FlugHjálp fylgjumst náið með stöðunni og getum aðstoðað farþega við að skilja rétt sinn og næstu skref.

 
 
 

Comments


Commenting on this post isn't available anymore. Contact the site owner for more info.
bottom of page