Warunki i postanowienia
1. Almennt
Skilmálar þessir gilda um notkun á þjónustu Flughjálpar („félagið", „við", „okkur" eða „okkar") af hálfu notenda („þú", „viðskiptavinur", „skjólstæðingur"). Með notkun þjónustunnar samþykkir þú þessa skilmála.
2. Þjónusta
Flughjálp býður þjónustu sem aðstoðar flugfarþega við að krefjast bóta vegna truflana á flugi, svo sem seinkunar, aflýsinga eða neitunar á flugfari.
Flughjálp veitir ekki lögfræðiþjónustu né aðra lögfræði ráðgjöf.
3. Umboð
Með notkun á Flughjálp veitir þú félaginu heimild til að koma fram fyrir þína hönd í bótakröfuferlinu. Þetta felur í sér að heimila okkur samskipti við flugfélög og viðeigandi yfirvöld, senda inn kröfur, semja, taka við greiðslum og ef nauðsynlegt er, að fara með mál fyrir dómstóla.
4. Meðferð kröfu og ákvörðunarvald
Flughjálp starfar eingöngu sem milligönguaðili milli þín og flugfélagsins. Við áskiljum okkur rétt til að ákveða hvort einstakar kröfur séu teknar áfram eða ekki. Félagið getur á hvaða tímapunkti sem er, án ábyrgðar, skilað máli aftur til viðskiptavinar og hætt frekari meðferð.
5. Tegund bóta
Við sækjumst einungis eftir bótum í peningum samkvæmt gildandi reglugerðum um réttindi flugfarþega (t.d. EC261/2004).
Tilboð flugfélaga í formi punkta, inneigna eða annarra greiðslna sem ekki eru í peningum, geta af Flughjálp verið meðhöndluð sem synjun á réttmætum bótum.
6. Eftirfylgni og málaferli
Ef flugfélag svarar ekki eða hafnar réttmætri kröfu, áskilur Flughjálp sér rétt til að vísa málinu til viðeigandi eftirlitsaðila og yfirvalda eða grípa til aðgerða sem geta falið í sér samstarfvið lögfræðinga eða annara aðila með það fyrir augum að höfða dómsmál.
7. Tímamörk
Flughjálp ber ekki ábyrgð á lengd kröfuferlis, né heldur þegar mál hafa tafist í meðhöndlun okkar.
Afgreiðslutími mála getur verið breytilegur eftir viðbrögðum flugfélaga, flækjustigi málsins og þátttöku utanaðkomandi aðila.
8. Engin ábyrgð á árangri
Flughjálp ber enga ábyrgð ef kröfu er hafnað eða ef flugfélag greiðir ekki bætur. Við innheimtum aðeins þjónustugjald ef tekist hefur að ná fram bótum.
9. Þjónustugjald og greiðslur
Ef flugfélag greiðir út bætur mun Flughjálp:
-
Draga frá 25% þjónustugjald
-
Greiða viðskiptavini eftirstöðvarnar með áður umsömdum greiðslumáta.
Engin gjöld eru innheimt fyrirfram. Þjónustugjaldið okkar er háð því að bótagreiðsla fáist frá flugfélaginu.
10. Skyldur viðskiptavinar
Við undirritun þessara skilmála samþykkir þú að:
-
Veita réttar upplýsingar.
-
Ekki reka sömu kröfu sjálf(ur) eða með öðrum hætti á meðan ferlinu stendur.
-
Láta okkur vita tafarlaust ef þú færð bætur greiddar beint frá flugfélaginu.
11. Breytingar
Flughjálp áskilur sér rétt til að uppfæra eða breyta skilmálum þessum sem og verðskrá. Breytingar eru tilkynntar viðskiptavinum á vefsvæði okkar. Flughjálp áskilur sér einnig rétt til að tilkynna um breytingar með tölvupósti eða sms. Einstaklingum er heimilt at segja upp þjónustu þegar Flughjálp tilkynnir um fyrirhugaða breytingu á verðskrá eða skilmálum. Áframhaldandi notkun þjónustunnar felur í sér samþykki á öllum breytingum.