Seinkun á flugi
Ef fluginu þínu seinkar gætir þú átt rétt á bótum samkvæmt evrópureglugerð 261/2004. Upphæð bótanna fer eftir fjarlægð flugsins og endurbókunarkostum.
Öll flug sem eru 1500 km eða styttri.
-
250 evrur ef þú komst á áfangastað meira en 3 klst eftir áætlaðan komutíma aflýsta flugsins.
Öll flug innan Bandalagsins* lengri en 1500 km og fyrir öll önnur flug á bilinu 1500 til 3500 km.
-
400 evrur ef þú komst á áfangastað meira en 3 klst eftir áætlaðan komutíma aflýsta flugsins.
Öll flug sem falla ekki undir ofangreint.
-
300 evrur ef þér var boðin endurbókun í flug sem kom á áfangastað innan 3 til 4 klst frá áætluðum komutíma aflýsta flugsins.
-
600 evrur ef þú komst á áfangastað meira en 4 klst eftir áætlaðan komutíma aflýsta flugsins.
Hvenær áttu ekki rétt á bótum?
-
Ef flugi er aflýst vegna óviðráðanlegra aðstæðna t.d. veðurofsa eða verkfalla eru flugfélög ekki bótaskyld, en farþegar gætu átt rétt á þjónustu.
-
Athugaðu að evrópureglugerð 261/2004 á ekki við um ferðalög sem bæði hefjast og enda utan ESB, t.d. ferð sem hefst í Bandaríkjunum eða Kanada og endar í Færeyjum eða Grænlandi, jafnvel þó það sé millilent á Íslandi.
*Innan Bandalagsins á við um flug innan Evrópusambandsins (ESB) og EFTA löndin (Ísland, Lichtenstein og Noreg). Flug frá þessum löndum eða milli þeirra falla undir evrópureglugerð 261/2004 sem og flug með flugrekanda sem er skráður innan þessara landa.